Vetrarsólstöðutónleikar

Vetrarsólstöðutónleikar

Harpa | Fimmund, Harpa | Fimmund, 5.hæð

Mon 21.12.2026 11:00

Vetrarsólstöðutónleikar

 Staður: Fimmund í Hörpu
 Dagsetning: Mánudagur 21. desember
 Tími: Kl. 11:00
 Aldur: Allur aldur
 Aðgangur: Ókeypis og ekki þarf að sækja miða

Mánudagurinn 21. desember er stysti dagur ársins. Í Reykjavík kemur sólin upp um kl. 11:21 og dagsbirtan varir aðeins í rétt rúmar fjórar klukkustundir.

Við ætlum að njóta þess að fylgjast með sólinni koma upp yfir borginni og hlusta á fallega tónlist leikna á hörpu og fiðlu af Katie Buckley og Sigrúnu Harðardóttur.

Gestir geta komið sér vel fyrir á stólum, mottum eða púðum – eða jafnvel lagst á gólfið, lokað augunum og hlustað. Tónleikarnir eru hugsaðir sem róleg stund í skammdeginu, þar sem fjölskyldur geta staldrað við, hlustað og notið augnabliksins saman.

Notaleg stund fyrir hugann rétt fyrir jólin, þegar daginn tekur loks að lengja á ný.


Performers