Tölum saman um líðan og tengsl - Barnaheill og Geðhjálp á ferð um landið

Tölum saman um líðan og tengsl - Barnaheill og Geðhjálp á ferð um landið

Reyðarfjarðarkirkja, Búðargata 1, 730 Reyðarfjörður Directions

Tue Oct 06 2026 19:30

Barnaheill og Geðhjálp taka höndum saman og ferðast um landið í haust. Þar verður fundað með efstu bekkjum grunnskóla um líðan og veruleika ungmenna á hverjum stað. Lögð verður áhersla á samskipti, tengsl og líðan. Þriðjudaginn 6. október verða samtökin á Reyðarfirði að funda með 10. bekkingum í Fjarðarbyggð.

Um kvöldið er boðið til opins samtals í Safnaðarheimili Reyðarfjarðarkirkju þar sem nemendur og/eða hópstjórar kynna það helsta sem kom fram í hópavinnunni. Þangað er forsjáraðilum sérstaklega boðið til að hlusta og eiga samtal um það sem brennur á börnum og ungmennum svæðisins.

Þar verða einnig umræður í lokin með áherslu á jákvæð skilaboð sem hægt er að byggja á í áframhaldandi vinnu innan hvers samfélags og á hverju heimili. Í anda Geðlestarinnar endar dagskráin á stuttum tónleikum með Unnsteini Manuel.

Á þennan fund eru öll velkomin en þó er ekki æskilegt að börn yngri en 12 ára mæti.