Syngjum saman í Hannesarholti með Marínu Ósk
Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Directions
Sat Nov 14 2026 14:00
Syngjum saman í Hannesarholti með Marínu Ósk laugardaginn 14.nóvember kl.14. Textar á tjaldi og allir syngja með. Ókeypis inn.
Tónlistarkonan Marína Ósk hefur komið víða víð á sínum ferli og starfar í fullu starfi sem söngkona. Hún er tvöfaldur handhafi íslensku tónlistarverðlaunanna sem jazzsöngkona og lagasmiður og hefur gefið út þrjár sólóplötur. Þess utan er hún einn af máttarstólpum húshljómsveitar Máls og Menningar, The Bookstore Band, sem kemur fram fyrir fullu húsi á hverju einasta kvöldi. Hún kennir einnig söng við Listaháskóla Íslands, en hún lauk meistaragráðu í jazztónlist frá Konunglega tónlistarháskólanum í Stokkhólmi árið 2021 og bakkalárgráðu í jazzsöng frá Conservatorium van Amsterdam árið 2017.