Stafræn velferð og lestur góðra bóka
Laugarneskirkja, Kirkjuteigur 12, 105 Reykjavík Directions
Thu Sep 24 2026 19:30
Hvað þýðir stafræn velferð í daglegu lífi barna og fjölskyldna? Hvernig togar síminn svona í okkur? Geta bækur verið bjargráð á stafrænni öld?
Foreldrar og forráðamenn eru hjartanlega velkomnir á þennan skemmtilega viðburð þann 24. september klukkan 19:30. Aðgangur ókeypis.Kvöldið byrjar á fyrirlestri Önnu Laufeyjar Stefánsdóttur hjá Stafrænni velferð. Við fáum heimsókn frá Sölku bókaútgáfu sem mun kynna bækur sem tengjast viðburðinum og viðfangsefnunum og að lokum munum við hafa tækifæri til að spjalla og bera saman bækur okkar.
Um fyrirlesturinn:
Hvernig togar síminn svona í okkur?
Hvaða aðferðir nota tæknifyrirtækin til að halda athygli okkar? Athygli okkar og tími eru verðmæti, og eins og með önnur verðmæti þurfum við að fara varlega þegar við gefum þau frá okkur.
Anna Laufey hjá Stafrænni velferð er tölvunarfræðingur, app forritari, móðir og snjallsímafíkill sem heldur fræðsluerindi um þær aðferðir sem tæknifyrirtækin nota til að halda athygli notanda í leikjum og samfélagsmiðlum og hvað það er sem gerir sum öpp meira ávanabindandi en önnur.
Við skoðum hvernig við getum tekið meðvitaðar ákvarðanir við val á leikjum og öppum fyrir börnin okkar, og hvað ber sérstaklega að varast. Að lokum verður rætt hvað foreldrar geta gert til að stuðla að heilbrigðu jafnvægi í skjánotkun – fyrir börnin, okkur sjálf og fjölskylduna í heild.
Aðgangur ókeypis.
Stuðningshópur foreldra í Laugarneshverfi