Söngvaskáld í stofunni nr. 2: Ragnheiður Gröndal & Marína Ósk

Söngvaskáld í stofunni nr. 2: Ragnheiður Gröndal & Marína Ósk

Háeyrarvellir 2, 820 Eyrarbakki, Iceland, Háeyrarvellir 2, 820 Eyrarbakki Directions

Sun Sep 27 2026 20:00

Kæru Eyrbekkingar og nærsveitungar - Ykkur er boðið heim.. aftur!

Tilefni: Aðrir tónleikar tónleikaraðarinnar *Söngvaskáld í stofunni*

Gestur kvöldsins: Ragnheiður Gröndal

Staður: Háyrarvellir 2, Eyrarbakki

Stund: 27. september 2026 kl. 20:00

Aðgangur: Fyrstur mætir, fyrstur fær sæti

Miðaverð: Þú mátt bara ráða

Gott að vita: Ekki hjólastólaaðgengi, kisuheimili, viðburðurinn verður tekinn upp á hljóð og mynd

MX PROJECTS og söngkonan Marína Ósk kynna „Söngvaskáld í stofunni“, stofutónleikaröð þar sem söngkonan Marína Ósk býður íslenskum söngvaskáldum heim í stofu, hvar þau flytja tónlist hvors annars, spjalla við áhorfendur og segja sögur.

Húseigendur þakka kærlega fyrir frábærar móttökur á fyrstu tónleikum tónleikaraðarinnar og endurtaka nú leikinn! Að þessu sinni kíkir hin stórkostlega Ragnheiður Gröndal í stofuhornið með Marínu Ósk, sunnudaginn 27. september.

Söngblómið Ragnheiður hefur hreiðrað um sig í hjörtum þjóðarinnar um árabil og lætur ómblíð rödd hennar engan ósnortinn. Hún er stórkostlegur lagasmiður og útsetjari og hefur einstaklega *Ást*-ríka tónlistarlega nærveru.

Saman munu þær Ragnheiður og Marína flytja lög hvorrar annarrar í bland við sérstaklega valdar ábreiður.

Búast má við mjúkri og heimilislegri tónleikaupplifun, léttkitluðum hláturvöðvum, tónlistarlegri næringu og léttum veitingum í boði húseigenda.

Húsið opnar 19:15 og tónleikar hefjast kl. 20:00. Takmarkað verður sætaframboðið og fyrstur kemur, fyrstur fær sæti. Áhorfendur velja sjálfir sitt eigið miðaverð og einnig verður hægt að fjárfesta í plötum og varningi listafólksins.

Viðburðurinn er unninn með dyggum stuðningi frá Uppbyggingarsjóði Suðurlands og Tónlistarsjóð. Markmið verkefnisins er að stuðla að samheldni samfélagsins sem og fjölbreyttu tónleikahaldi utan höfuðborgarsvæðisins.

Landslagsmynd af Eyrarbakka: Regína Rist

Hönnun kynningarefnis: Martin L. Sörensen