Rólegt jógaflæði og jóga nidra slökun

Rólegt jógaflæði og jóga nidra slökun

Lífsgæðasetur St. Jó, Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður Directions

Mon Sep 28 2026 18:15

Mýkt, hreyfing og djúp slökun.

Í þessum tímum er unnið með mjúkt og rólegt jógaflæði þar sem áhersla er lögð á að hlúa að líkamanum, auka hreyfigetu og liðleika og losa um spennu. Með hægum og meðvituðum hreyfingum, góðum teygjum og tengingu við öndun fær líkaminn tækifæri til að mýkjast og hreyfast á þægilegan hátt.

Liðkandi hreyfingar og teygjur geta aukið hreyfanleika liðamóta og bætt hreyfiferil og hreyfigetur, eins geta hjálpað til við að draga úr stífleika og spennu. Rólegt flæði stuðlar jafnframt að aukinni líkamsvitund, jafnvægi og betri tengingu milli öndunar og hreyfingar.

Í lok hvers tíma er farið í jóga nidra, djúpa leiddа slökun þar sem líkaminn fær að hvílast í kyrrstöðu. Áherslan færist frá hreyfingu yfir í hvíld, með það að markmiði að róa hugann, draga úr spennu og styðja við djúpa líkamlega og andlega slökun.

Tímarnir henta vel þeim sem vilja skapa aukið rými fyrir hreyfingu, mýkt, endurheimt og kyrrð í dagsins önn.

Engin fyrri reynsla af jóga er nauðsynleg og hver og einn vinnur út frá sínum líkama og getu.

Mjúkt jógaflæði og jóga nidra

8 skipti

mánudagar kl 18:15

25.500 kr

yogahusid@gmail.com