Oddur Arnþór og Hrönn Þráinsdóttir flytja Brahms og Jórunni Viðar - Tónlistarnæring
Music school Garðabær, Kirkjulundur 11, 210 Garðabær Directions
Wed 02.09.2026 12:15
Fyrstu Tónlistarnæringu haustsins færa okkur baritónsöngvarinn Oddur Arnþór Jónsson og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari.
Á efnisskránni eru lög eftir Brahms og Jórunni Viðar. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.
Oddur hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2018 sem söngvari ársins en hann var útnefndur bjartasta vonin 4 árum áður. Oddur lærði í Söngskólanum í Reykjavík og í Mozarteum í Salzburg. Oddur hefur sungið mörg hlutverk í Íslensku Óperunni s.s. Don Giovanni í samnefndri óperu Mozart og Rakarann í samnefndri óperu Rossinis. Þá hefur hann sungið í allmörgum óperuhúsum í Þýskalandi og Hollandi. Oddur hefur einnig komið víða fram sem ljóða- og óratóríusöngvari svo sem í Garnier-óperunni í París og á Britten - Pears hátíðinni í Aldeburgh, Englandi.
Hrönn er einn liðtækasti meðleikari íslenskra söngvara um árabil en hún var nemandi Jónasar Ingimundarsonar um árabil. Hrönn lauk framhaldsnámi frá Tónlistarháskólanum í Freiburg og Stuttgart og sérhæfði sig í meðleik ljóðasöngs.
Performers
-
GarðabærÍ Garðabæ er hægt að njóta útivistar í óspilltri náttúru sem og menningar en um leið er