Mugison og bandið í Fantasíu
Vinnustofa Kjarval - Fantasía, Austurstræti 12, 101 Reykjavík Directions
Fri Oct 30 2026 20:00
Ég kem sárasjaldan fram með bandinu mínu, alltof sjaldan - fyrir vikið er það alltaf extra gaman. Nú gerist það í Fantasíu, litla salnum hjá Snorra Helgasyni í Austurstræti. Eitt kvöld, eitt band, öll bestu lögin og nokkur sem enginn biður um en alltaf gaman að spila! Kannski eitthvað nýtt! . Það gæti liðið góður tími þar til við gerum þetta aftur - þannig að ég vil hvetja þig til þess að koma og skemmta þér í botn með okkur.
Í bandinu er: Guðni (bassi), Rósa (Sax), Tobbi (hljómborð og gítar), Addi (trommur) og Garðar (hljóðmaður)… og auðvitað ég
Verð: 6.990 í forsölu á Tix, 8.990 í hurð.