Kynningarfundur um Uppbyggingarsjóð Suðurlands í Freysnesi, Öræfum
Hotel Skaftafell, Freysnes, 785 Hornafjörður Directions
Wed Sep 23 2026 16:00
Uppbyggingarsjóður Suðurlands veitir íbúum á Suðurlandi tækifæri til þess að láta hugmyndir sínar verða að veruleika. Hann hefur nú þegar opnað, 16. september og stendur opinn til 21. október kl 14.
Miðvikudaginn 23. september kl 16 heldur Eva Bjarnadóttir byggðaþróunarfulltrúi kynningu á barnum á Hóteli Skaftafelli, þar sem hún fer yfir Sóknaráætlun Suðurlands og Uppbyggingarsjóðinn. Þar mun gefast tækifæri til þess að spyrja spurninga og fræðast um sjóðinn.
Öll velkomin!
Athugið að kynningin fer fram á íslensku. Kynning á ensku verður streymt síðar, en enskumælandi íbúum er velkomið að mæta á fundinn og spyrja spurninga. Tekið er við umsóknum í sjóðinn á ensku.