Jólagrautur á Vagninum - Tónleikur - Jól - Upphitun - Skemmtun.

Jólagrautur á Vagninum - Tónleikur - Jól - Upphitun - Skemmtun.

Vagninn Restaurant, Hafnarstræti 19, 425 Flateyri Directions

Fri Nov 20 2026 20:00

Jæja gott fólk,

Það stendur mikið til á Vagninum á Flateyri helgina 20.-21. nóvember. Vinir og velunnarar hans ætla að opna hann upp á gátt og bjóða upp á sannkallaða tónlistarveislu í aðdraganda jóla.

Hrært verður í girnilegan Jólagraut þar sem öllu ægir saman. Baggalútur, Hjálmar, Sigurður Guðmundsson & Memfismafían, Bogomil Font & Greiningardeildin og Árný Margrét mæta á svæðið og telja í ýmiskonar hátíðar- og aðventuhittara í bland við hugljúf jólalög og sígilda smelli.

Einstakt tækifæri til að koma sér í jólagírinn með góðum fyrirvara.

Við hvetjum fólk til að tryggja sér miða sem fyrst.

Húsið opnar kl 19:00 báða dagana fyrir fólk með miða.

Drekkutíminn verður samt á sínum stað úti á palli kl. 17:00 báða dagana.

Hlekkur á forsölu:

https://checkout.tix.is/is/specialoffer/k6rystl6jv3xq