Hespa - handavinnuhópur

Hespa - handavinnuhópur

Bókasafn Reykjanesbæjar, Stapasafn, Dalsbraut 11, 260 Njarðvík Directions

Mon 28.09.2026 19:30

Langar þig til þess að prjóna, hekla, sauma og spjalla í góðum félagsskap?

Stapasafn er með handavinnuhóp sem öllum er velkomið að taka þátt í, hvort sem um ræðir eitt skipti eða öll.

Hópurinn hittist tvisvar í mánuði í Stapasafni á Dalsbraut 11 (sami inngangur og í íþróttamiðstöð) kl. 19.30

Athugið að ekki er um kennslu að ræða að þessu sinni heldur er frekar lögð áhersla á góðan félagsskap og að hópurinn hjálpist að innbyrðis.

Hópurinn er á Facebook: https://www.facebook.com/groups/1182746986665705

Hittingarnir eru að sjálfsögðu ókeypis og öll hjartanlega velkomin

Sjáumst í Hespu.