Herrakvöld Álftaness

Herrakvöld Álftaness

Kaldalónshöllin, Breiðamýri, 225 Álftanes Directions

Sat Nov 07 2026 19:00

Þá er komið að hinu sívinsæla herrakvöldi Álftaness sem verður haldið í Kaldalónshöllinni laugardaginn 7. nóvember! Það er óhætt að lofa því að þetta kvöld verður eitt allra skemmtilegasta kvöld ársins.

Run and Gun bræður, þeir Tommi Steindórs og Mate Dalmay, halda um stjórnartaumana á kvöldinu og sjálfur Gunnar Sigurðarson, oft þekktur sem Gunni samloka, mætir sem ræðumaður kvöldsins.

Svo verður að sjálfsögðu hið eina sanna og fræga steikarhlaðborð að hætti Björgvins á sínum stað, ásamt veglegu uppboði og sturluðu happdrætti þar sem engu verður til sparað.

Þetta stefnir í algjöra veislu sem enginn vill missa af!

Miðasala:

• Stakur miði: 12.990 kr.

• 10 manna borð (bjór fylgir): 120.000 kr.

Performers