Hátíðarstofnfundur KÓRÍS
10/11 Austurstræti, Austurstræti 5, 101 Reykjavík Directions
Sat Sep 26 2026 17:00
Hátíðarstofnfundur KÓRÍS - Kórasambands Íslands og undirritun starfssamnings við Menningar,- nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
Við hvetjum öll sem eru tengd þessu málefni að mæta og fagna með okkur. Kórfólk, stjórnir kóra, kórstjórar og öll sem hafa áhuga á kórstarfi velkomin! Léttar veitingar verða í boði.
Stofnfundurinn fer fram í Tónlistarmiðstöð, Austurstræti 5, 2. hæð. Gengið inn vinstra megin við verslunina Icewear.
KÓRÍS eru heildarsamtök sem munu vinna að málefnum allra kóra á Íslandi. Aðildarfélög eru LBK, Gígjan, SÍK, UngÍkór og FÍK og hafa þessi félög unnið að stofnun þessara samtaka í dágóðan tíma.
Þetta eru tímamót í sögu íslenskrar kórmenningar!