Stórhöfði
Hvaleyrarvatn, Ásland, Ásland Directions
Wed 12.08.2026 20:00
Næsta menningar- og heilsuganga sumarsins verður miðvikudaginn 12.ágúst kl.20 👌🤗
Komdu út að ganga í heilsubænum Hafnarfirði 🚶♀️🚶♂️
Harpa Gústavsdóttir leiðir ljúfa kvöldgöngu hringinn í kringum Stórhöfða sunnan við Hvaleyrarvatn. Um er að ræða þægilega gönguleið með fallegu útsýni yfir nágrennið 🌱
📍 Gengið frá: bílastæðinu við vesturenda Hvaleyrarvatns.
Í sumar býður Hafnarfjarðarbær upp á bæjargöngur með leiðsögn alla miðvikudaga. Göngurnar eru samstarfsverkefni Bókasafns Hafnarfjarðar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Hafnarborgar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Flestar göngur taka um klukkustund og hefjast kl. 20, nema annað sé tekið fram. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin 🤗
Göngur sumarsins 2026 👉 https://hfj.is/Gongur26
Performers
-
HafnarfjarðarbærHafnarfjörður er þriðji stærsti bær landsins, framsækið sveitarfélag sem byggir á fjölsky