Tónleikar: Hjörleifur Valsson og Jónas Þórir

Tónleikar: Hjörleifur Valsson og Jónas Þórir

Stóruborgarkirkja, Stóra-Borg, 801 Borg í Grímsnesi Directions

Sun 16.08.2026 16:00

Tónleika Hjörleifs Valssonar og Jónasar Þóris i Skalholtsdomkirkja. Hjörleifur Valsson fiðluleikari og Jónas Þórir kantor Bústaðakirkju og píanóleikari munu vera með opna tónleika í Skálholtskirkju sunnudaginn 16. ágúst kl. 16 til styrktar hinum nýja flygli kirkjunnar. Efnisskráin verður úr ýmsum áttum en þeir risar sem kvatt hafa íslenskt tónlistarlíf á árinu verða m.a. minnst. Lög eftir Magnús Eiríksson, Gunnar Þórðarson og Megas. Ásamt því mun hljóma í kirkjunni Bach og Bítlarnir. Einnig verða nokkur lög eftir Jónas Þórir m.a. sálmurinn Þung er mín sorg og sár sem er í sálmabókinni og verður fluttur í sérstakri útsetningu sem er sérstaklega samin af þessu tilefni. Hjörleifur Valsson fiðluleikari hefur búið og starfað í Noregi í all mörg ár en var á Íslandi núna í ár en er að flytja aftur út í haust og því fannst þeim félögum við hæfi að vera með tónleika líkt og þeir voru með hér fyrir nokkrum…

Performers