Hvarfdalur - Heljuskáli
Dalvíkurkirkja, Böggvisbraut, 620 Dalvík Directions
Sat 15.08.2026 08:00
Hvarfdalur - Heljuskáli. 3 skór.
Mæting við Dalvíkurkirkju kl 08:00 fyrir þá sem ætla lengri ferðina og verður þeim skutlað að upphafsstað göngu á Lágheiði. Gengið frá Lágheiði ofan í Hvarfdal, fram dalinn, gegnum Hvarfdalsskarð, eftir Hákömbum og yfir í Heljuskála. Hægt er að fá trúss í skálann. Þar verður gist og gengið niður Svarfaðardal daginn eftir.
Einnig er möguleiki að ganga styttri og auðveldari leið, upp úr Svarfaðardal í skálann og mætast þar. Þeir sem ætla styttri leiðina mæta við Dalvíkurkirkju klukkan 9:00 og sameinast í bíla.
Gangan frá Lágheiði yfir í Heljuskála er ca 14 km og um 1000 m hækkun, 6-8 klst.
Verð kr. 9.500.- fyrir félagsmenn, 12.000 fyrir aðra.
Innifalið í verði er akstur á upphafsstað, leiðsögn, trúss í Heljuskála, kvöldmatur og gisting í skála.
Nánari upplýsingar og skráning í tölvupósti til Ferðafélags Svarfdæla, ferdafelagsvarf@gmail.com.
Fararstjóri, Júlíus Magnússon, gefur einnig nánari upplýsingar varðandi búnað o.fl. í síma 6638828.