Hádegistónleikar - Nýja Tríó Reykjavíkur | Harpa býður heim
Norðurljós in Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Directions
Sat 22.08.2026 12:30
Nýja Tríó Reykjavíkur, skipað píanóleikaranum Liam Kaplan, fiðluleikaranum Herdísi Mjöll Guðmundsdóttur og sellóleikaranum Geirþrúði Önnu Guðmundsdóttur, býður upp á fallega hádegistónleika á Menningarnótt þar sem það flytur valda kafla úr Dumky píanótríói Dvořák í bland við nýjar útsetningar eftir Liam Kaplan á ástsælum íslenskum sönglögum svo sem Hríslan og lækurinn og Nú andar suðrið sæla. Tónleikarnir eru um 30 mínútna langir.
Nýja Tríó Reykjavíkur var stofnað árið 2025 og hlaut strax afar jákvæða dóma fyrir „ótrúlega samhæfni“ og „dýnamískan og ljóðrænan flutning“ (Morgunblaðið). Hópurinn er nefndur í höfuðið á Tríói Reykjavíkur og er markmið nýskipaðs tríós að halda uppi þeirri merkilegu píanótríóhefð sem Tríó Reykjavíkur festi hér í sessi. Tríóið skipa Herdís Mjöll Guðmundsdóttir fiðluleikari, Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir sellóleikari og Liam Kaplan, píanóleikari. Öll hafa þau komið fram í tónleikasölum víða um heim en þar má nefna Carnegie Hall, Southbank Centre, Fílharmóníuna í Varsjá, á Tíbrá tónleikaröðinni og í Hörpu. Þau hafa komið fram sem einleikarar með hljómsveitum á borð við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Royal Academy of Music Symphony Orchestra, Oberlin Sinfonietta, Oberlin Orchestra og Aspen Conducting Academy Orchestra. Liam Kaplan er leiðari píanódeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands en Herdís Mjöll gegnir stöðu fiðluleikara í Minnesota Orchestra í Bandaríkjunum. Geirþrúður Anna starfar sem einleikari og kammerspilari víða um Evrópu og mun gefa út sína fyrstu plötu með Orchid Classics síðar á þessu ári.
Þau munu koma fram saman á Sígildum sunnudögum í Norðurljósum vorið 2027 og Geirþrúður og Liam á einleikstónleikum í haust í sömu tónleikaröð.
Performers
-
Liam KaplanPianist.
-
Herdís Mjöll GuðmundsdóttirPianist.