SPREK á LEMMY

SPREK á LEMMY

LEMMY, Austurstræti 20, 101 Reykjavík Directions

Sat 15.08.2026 21:00

Hljómsveitin SPREK mætir fílelfd eftir smá hlé og treður upp á LEMMY laugardaginn 15. ágúst. Eins og nafnið gefur mögulega til kynna þá kvikna oft af gömlum kvistum ferskir neistar. Sveitin er skipuð reynsluboltum úr íslensku tónlistarlífi sem hafa spilað með hljómsveitum á borð við Grafík, Sálinni, Paradís og Júpíter.

Nýjar og progg-skotnar útfærslur á þekktu efni Rúnars Þórissonar (Grafík o.fl.) ásamt nýjum verkum þar sem tónlistin sjálf í sinni tærustu mynd fær að njóta sín.

Hljómsveitina skipa:

Halldór Lárusson – Trommur

Jens Hansson – Saxófónn

Jóhann Þórisson – Bassi

Nikulás Róbertsson – Hljómborð

Rúnar Þórisson – Gítar