Alfanámskeið í Grensáskirkju

Alfanámskeið í Grensáskirkju

Grensáskirkja church, Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík Directions

Wed 09.09.2026 18:30

Alfa námskeið verður haldið í Grensáskirkju á miðvikudögum frá 9. september nk. kl. 18:30. Um er að ræða tíu vikna námskeið sem fram fer alla miðvikudaga frá 9. september til 4. nóvember. Tekið er á móti skráningum í síma 528-8510 og á netfangið thorvaldur@kirkja.is.
Á Alfa er á einfaldan og þægilegan máta fjallað um grundvallaratriði kristinnar trúar og boðskap Biblíunnar. Umgjörð Alfa er afslöppuð og þægileg. Ekki eru gerðar kröfur um trúarafstöðu né heimalærdóm eða aðrar skuldbindingar gerðar til þátttakenda. Öllum er frjálst að hafa sínar skoðanir og spyrja spurninga. Alfa er 10 vikna námskeið um kristna trú. Leitast er við að svara mikilvægustu spurningum lífsins, spurningum sem allir spyrja sig einhvern tímann á lífsleiðinni. Til dæmis: Er Guð til? Hver er tilgangur lífsins? Er kristin trú úrelt og óviðeigandi? 
Hver samvera hefst á léttum málsverði. Síðan er horft á 20-30 mín. myndband um afmarkað efni í kristinni trú og eftir stutt hlé er boðið upp á umræður í hópum. Dagskránni lýkur svo á helgistund fyrir þá sem þess óska. 
Alfa styðst við bók Nicky Gumbel: Spurningar lífsins (e. Questions of Life). Alfa hefur verið haldið í fjölmörgum kirkjum á Íslandi síðan árið 1997. Alfa námskeiðin eiga uppruna sinn í Holy Trinity Brompton kirkjunni í London. Alfa námskeiðið hófst á Englandi fyrir u.þ.b. 30 árum. Námskeiðið er haldið í um 130 löndum í flestum kirkjudeildum. Þau hafa verið haldin út um allan heim, enda eitt vinsælasta og áhrifamesta námskeið sinnar tegundar í heiminum. 
Fyrir hverja er Alfa?
Alfa er opið öllum sem ... 
Um hvað er rætt á Alfa?
Vertu hjartanlega velkomin á Alfa námskeið í Grensáskirkju. 

Performers