Árgangamót KFÍA 2026

Árgangamót KFÍA 2026

Íþróttahúsið á Vesturgötu (Akraneskaupstaður),

Sat Sep 26 2026 12:00

Árgangamót 2026 í Knattspyrnu þar sem spilaður er fótbolti og fagnað vel um kvöldið.

Aldurstakmark á viðburðinn er 20 ára, 2006 model.

Velkomin á Árgangamót ÍA í knattspyrnu laugardaginn 26.september næstkomandi. Knattspyrnumótið er haldið í Akraneshöll og að lokum klárum við kvöldið á skemmtilegu lokahófi og balli í Íþróttahúsinu á Vesturgötu. Markmið mótsins er að fá árganga saman, spila fótbolta og hafa gaman. Staðfestingagjald er 5.000kr á hvert lið (einungis einn aðili greiðir fyrir liðið) en það verður endurgreitt með glaðning ef liðið mætir til leiks þann 26.sept.

12:00 - 15:00

Dagskrá hefst í Akraneshöll

Riðlar og úrslitaleikir

Akraborgin opin

Lokahófið er rosalegt og verður haldið á Vesturgötunni. Hjördís Brynjarsdóttir og Alexander Aron Guðjónsson verða veislustjórar og munu halda úti miklu stuði langt fram á nótt.

Dagskráin er ekki af verri endanum.

19:00

Húsið opnar í Íþróttahúsinu á Vesturgötu

Happy hour

19:45

Lokahóf hefst

Matur og verðlaunaafhending

21:45

Ball hefst

Páll Óskar

Daniil

Herra Hnetusmjör

Dj Marinó

Allir eru velkomnir, þó svo að ekki sé tekið þátt í fótboltanum fyrr um daginn.