Ár í Miðhúsum
Hljómahöll Conference Center, Hjallavegur 2, 260 Njarðvík Directions
Sun Oct 04 2026 13:00
Ár í Miðhúsum - heimildarmynd eftir Hilmar Braga Bárðarson og Hörð Gíslason sýnd haustið 2026.
Myndin verður sýnd þrívegis þann 4. október næstkomandi kl. 14:00, 15:30 og 17:00.
Í Miðhúsum í Garði hafa kynslóðir alist upp við búskap, sjó, fjöru og síki. Þar komu Torfi og Margrét sér fyrir um 1940 og ólu upp fjórtán börn. Á jörðinni ráku þau um árabil stærsta kúabú Garðsins, með um þrjátíu mjólkandi kýr og stundum allt að fimmtíu gripi með geldneytum. Börnin tóku frá unga aldri fullan þátt í störfunum, en fundu jafnframt frelsi og ævintýri í náttúrunni umhverfis bæinn.
Heimildarmyndin Ár í Miðhúsum fylgir lífinu á þessum sérstaka stað í gegnum árstíðirnar. Myndin er í senn persónuleg fjölskyldusaga, lýsing á íslenskum búskaparháttum og frásögn af sterkum tengslum fólks við jörðina, fortíðina og hvert annað.
Gamla fjósið varð hjarta ættarinnar
Þótt hefðbundnum kúabúskap hafi lokið í Miðhúsum lifa húsin áfram. Systkinin tóku höndum saman, gerðu gamla fjósið og hlöðuna upp og breyttu þeim í félagsheimili og samverustað fjölskyldunnar. Þar eru haldin ættarmót, skötuveislur og aðrar samkomur. Húsin geyma jafnframt verkstæði, búvélar, ferðavagna og allt það sem fylgir lifandi athafnasemi.
Ættin telur nú yfir 200 manns og á fjölmennum ættarmótum fyllist Miðhús af lífi. Þar er tjaldað, kveiktur varðeldur, börn leika sér við fjöruborðið og tónlistarfólk úr fjölskyldunni heldur uppi gleðinni. Gamla fjósið, sem eitt sinn stóð undir lífsafkomu stórfjölskyldunnar, hefur öðlast nýtt hlutverk sem hjarta hennar og sameiningartákn.
Minningin um Torfa og Margréti er ætíð nærri. „Þau eru sagan okkar,“ segir einn afkomendanna. Staðurinn er tileinkaður þeim og þeirri arfleifð sem þau skildu eftir sig.
Einn traktor á hverja rollu
Í Miðhúsum eru um átta gamlir traktorar, flestir fimmtíu til sjötíu ára. Þeir eru ekki aðeins til sýnis. Hver einasti er gangfær og notaður við störfin. Traktor sem keyptur var til niðurrifs reyndist vera með svo góða vél að ekki kom til greina að fórna honum í varahluti. Hann var þess í stað gerður upp og bættist í hópinn.
Þar eru einnig heyvinnslutæki, rúlluvél, pökkunarvél og mykjudreifari frá áttunda áratugnum, samsettur úr tveimur gömlum dreifurum. Tækin eru þrifin, lagfærð og varðveitt af natni. Í Miðhúsum er sjálfbærni ekki nýtt tískuorð heldur gamall lífsmáti: að nýta það sem til er, gera við hlutina og láta þá endast.
Búskapurinn er ekki rekinn í hagnaðarskyni. Heyjað er fyrir eigið fé og afurðirnar nýttar innan fjölskyldunnar. Eins og sagt er með bros á vör í myndinni er þar nánast „einn traktor á hverja rollu“.
Heilt ár í lífi staðarins
Myndin fylgir bræðrunum og fjölskyldunni við dagleg störf. Á vorin er sauðburður og stundum þarf að hjálpa stórum lömbum í heiminn. Á sumrin eru túnin slegin og heyinu rúllað. Á haustin er slátrað til heimilisins og handtök sem lærðust í bernsku rifjuð upp. Þegar veturinn leggst yfir Miðhús standa gömlu húsin og vélarnar áfram vörð um söguna.
Innan um störfin vakna minningar um bernskuárin: börnin sem ráku kýrnar á beit, smíðuðu sér leikföng, léku sér í fjörunni og skautuðu á frosnum síkjunum. Vinnan var mikil, sérstaklega á sumrin þegar allur barnahópurinn var kallaður út á tún með hrífur. Samt var alltaf tími fyrir gleði og leiki.
Kynslóð tekur við af kynslóð
Jón Gunnar Torfason var síðasti bóndinn í Miðhúsum. Hann þekkir hvert tún, hvert hús og hvert handtak. Um leið og hann og bræður hans halda húsunum, tækjunum og jörðinni við vaknar óhjákvæmilega spurningin um framtíðina.
Mun yngra fólkið halda merkinu á lofti?
Svarið er varfærnislega bjartsýnt. Afkomendurnir vilja ekki missa staðinn. Þeir vilja varðveita húsin, jörðina og tengslin sem þar hafa orðið til. Þekkingin, minningarnar og samheldnin ganga áfram milli kynslóða.
Ár í Miðhúsum er hlý, einlæg og oft brosleg heimildarmynd um vinnusemi og hugvit, sterka fjölskyldu og stað sem heldur áfram að sameina fólk. Hún fjallar um verðmætin sem felast í því að þekkja uppruna sinn, nýta það sem til er og varðveita tengslin við fortíðina – án þess að gleyma að lifa í núinu.