Nærandi náttúra á Glerárdal

Nærandi náttúra á Glerárdal

Húsavík, Strandgata 23, 600 Akureyri Directions

Sat 15.08.2026 10:00

Ferðinni hefur verið AFLÝST

15.–16. ágúst 2026

Brottför kl. 10 frá Súlubílastæðinu.

Fararstjórn: Þuríður Helga Kristjánsdóttir jóga- og núvitundarkennari og Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir orku- og umhverfisverkfræðingur með mikinn áhuga á vistspeki.

Í þessari ferð er áhersla á að dýpka tengsl okkar við náttúruna og sækja þangað næringu, styrk og ró. Útivist, slökun og samveru verður blandað við fræðslu og umræður um vistheimspeki og virðingu fyrir náttúrunni. Sameiginlegur kvöldmatur er á laugardeginum. Þátttakendur koma sjálfir með nesti fyrir gönguferðirnar, snarl og morgunmat fyrir sunnudaginn. Óskað er eftir því að þátttakendur beri allir eitthvað af sameiginlega matnum.

Performers