Guðmundur Pétursson á Lemmy

Guðmundur Pétursson á Lemmy

Austurstræti 20, 101 Reykjavík, LEMMY, Austurstræti 20, 101 Reykjavík Directions

Fri 24.07.2026 21:00

Guðmundur Pétursson heldur tónleika á Lemmy föstudagskvöldið 24. júlí kl. 21:00. 

Á tónleikunum verður leikin tónlist af síðustu plötu Guðmundar, Wandering Beings, sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin á síðasta ári. Einnig verður flutt eldri og nýrri tónlist úr smiðju Guðmundar, ásamt völdum gömlum blúslögum. 

Guðmundur er einn af okkar fremstu gítarleikurum og býður hér upp á kraftmikla og lifandi tónleika þar sem blús, rokk, djass og persónulegur tónlistarheimur hans mætast á sviðinu. 

Guðmundur Pétursson, gítar og söngur
Andri Ólafsson, bassi
Kristinn Snær Agnarsson, trommur
 

 Ragga Gröndal, raddir og hljómborð

Tónleikarnir fara fram á Lemmy, föstudagskvöldið 24. júlí kl. 21:00

Performers