Tónleikakvöld í Garðinum mathöll
Smárabíó, Hagasmári 1, 201 Kópavogur Directions
Thu 24.09.2026 20:30
Smáralind og útvarpsstöðin K100 gefa upprennandi tónlistarfólki sviðið.
Í sumar og fram á haust verður boðið upp á reglulega tónleika í Garðinum mathöll í Smáralind þar sem ungt og upprennandi íslenskt tónlistarfólk stígur á svið og kynnir tónlist sína. Tónleikarnir fara fram annan hvern fimmtudag kl. 20.30 og eru öllum opnir.
Dagskrá:
6. ágúst - MAIAA
20.ágúst - Ína Berglind
10.september - Brynja Rán
24.september - Aníta Daxa
Tónleikaröðin er tilvalið tækifæri til að kynnast nýju íslensku tónlistarfólki og njóta notalegrar kvöldstundar yfir góðum mat og lifandi tónlist.
Garðurinn er ný og glæsileg mathöll í hjarta Smáralindar þar sem finna má fjölbreytt úrval veitingastaða. Í mathöllinni er fullbúið svið og öll aðstaða til tónleikahalds, sem skapar notalega umgjörð fyrir tónlistarfólk og gesti.
Nánari upplýsingar um komandi tónleika má finna hér: https://www.smaralind.is/vidburdir-i-gardinum