Kútapartí Fágunar 2026

Kútapartí Fágunar 2026

Klambratún Park, Klambratún, 105 Reykjavík Directions

Sat 22.08.2026 14:00

Hið árlega kútapartí Fágunar verður haldið á leikvellinum á Klambratúni (hjá grillinu) að vanda þetta árið. Um er að ræða viðburð þar sem fólk fær tækifæri til að smakka á ýmsu heimabruggi og hitta heimabruggarana sem brugguðu það. Frábært tækifæri til að kynnast þessu áhugamáli, og jú, til að fá framúrskarandi veigar án endurgjalds.

Við dælum til allavega 16:30 (svo framarlega sem bjórinn klárast ekki) og eflaust lengur.

Boðið verðu upp á grillaðar py(u)lsur og meððí meðan byrgðir endast.

Félagið mætir með kranastöð og skaffar kolsýru en fólki er að sjálfsögðu frjálst að mæta með flöskur, eigin krana eða hvað sem því lystir. Fágun vill þó óska eftir því að sem flestir sendi skilaboð á félagið með tölvupósti (fagun@fagun.is) eða í skilaboðum á Facebook svo við höfum yfirsýn yfir magn og fjölbreytni veiga.

Frjáls framlög til félagsins eru vel þegin og verður tekið við þeim á staðnum.

Performers