Leikjadjamm Húsavík
Hraðið - miðstöð nýsköpunar, Hafnarstétt 1, 640 Húsavík Directions
Fri 18.09.2026 12:30
Langar þig að búa til leik? Langar þig að kynnast leikjahönnun? Langar þig að kynnast öðrum sem hafa áhuga á leikjagerð?
Ertu 15–25 ára og forvitin um leikjagerð, nýsköpun eða hvernig leikjavæðing getur nýst í alls konar hugmyndavinnu?
Saman gerið þið tölvuleiki, borðspil og jafnvel útileiki!
Já þú getur verið með!
Á leikjadjammi safnast fólk saman úr ýmsum áttum og býr saman til leik eða leikjaupplifun frá grunni.
Fólk mætir saman eða kynnist á staðnum, fær hugmyndir og framkvæmir hana svo á tveimur dögum.
Það þarf reynslu úr öllum áttum til að búa til leiki. Fólk með skapandi hugsun, rithöfundar, teiknarar, grafískir hönnuðir, tónlistarfólk og forritarar vinna saman.
Það geta allir búið til leiki, líka þú! Við hjálpum ykkur af stað og gefum ykkur ráð um hversu stór hugmyndin getur verið til að þið náið að sýna hana í lok laugardags.
Performers
-
LeikjadjammÁ leikjadjammi safnast fólk saman úr ýmsum áttum og býr saman til leik eða leikjaupplifun frá grunni.
Fólk mætir saman eða kynnist á staðnum, fær hugmyndir og framkvæmir hana svo á tveimur dögum.
-
Game Makers IcelandA festival celebrating game development and creativity.
-
Hraðið miðstöð nýsköpunarHraðið – miðstöð nýsköpunar er líflegur heimavöllur frumkvöðla, stofnana og fyrirtækja sem vinna að nýsköpun með einum eða öðrum hætti.