Farsældardagur Farsældarráðs Norðurlands eystra
Hof Menningarhús, Strandgata 12, 600 Akureyri Directions
Fri 04.09.2026 10:00
Farsældarráð Norðurlands eystra stendur fyrir Farsældardegi þann 4. september 2026 kl. 10:00–15:00 í Hömrum í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Dagurinn er vettvangur fyrir samtal og miðlun reynslu um farsæld barna, þar sem áhersla er lögð á samþættingu þjónustu, samstarf þvert á kerfi og eflingu stuðnings við börn og fjölskyldur á svæðinu.
Á dagskrá eru fjölbreytt erindi frá fulltrúum sveitarfélaga og ríkis þar sem fjallað verður um stöðu og þróun farsældar barna á Norðurlandi eystra. Meðal annars verður fjallað um:
-virkni nærumhverfis og stuðningsnet barna
-reynslu af innleiðingu farsældar í smærri sveitarfélögum
-þjónustu- og ráðgjafasetur og samþættingu þjónustu
-framlag heilbrigðis-, félags- og menntakerfa
-reynslu foreldra af samræmdri þjónustu
Einnig verður haldið pallborð þar sem rætt verður um tækifæri og áskoranir í samþættingu þjónustu og hlutverk ólíkra aðila í að efla farsæld barna.
Dagskrána í heild sinni má finna hér: https://www.ssne.is/is/vidburdarlisti/farsaeldardagur-farsaeldarrads
Farsældardagurinn er hluti af áframhaldandi uppbyggingu farsældarsamfélags á Norðurlandi eystra og er ætlaður öllum sem starfa með börnum og fjölskyldum, sem og öðrum áhugasömum.
Að dagskrá lokinni verða léttar veitingar í boði og gefst þátttakendum tækifæri til að eiga frekara samtal og efla tengslanetið.
Skráning er hafin og áhugasamir eru hvattir til að tryggja sér þátttöku:
https://www.ssne.is/is/moya/formbuilder/index/index/farsaeldardagur-farsaeldarrads-nordurlands-eystra
Performers
-
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra - SSNE
SSNE eru landshlutasamtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra