Námskeið: Aðlögun íslensku að evrópska tungumálarammanum – íslenska sem annað mál

Námskeið: Aðlögun íslensku að evrópska tungumálarammanum – íslenska sem annað mál

Háskóli Íslands, Sæmundargata 2, 102 Reykjavík Directions

Fri 14.08.2026 09:00

Framhaldsskólateymi MEMM hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, mennta- og barnamálaráðuneytið og íslenska sem annað mál í HÍ, standa fyrir námskeiði fyrir kennara sem kenna íslensku sem annað mál í framhaldsskólum.

Hvar: Háskóli Íslands

Staðsetning: Nánari staðsetning verður tilkynnt þátttakendum þegar nær dregur

_______________________________________________________

Dagskrá:

09:00-12:00 - Aðlögun íslensku að evrópska tungumálarammanum

Sigríður D. Þorvaldsdóttir og María Anna Garðarsdóttir, aðjunktar við íslensku- og menningardeild HÍ, munu fara dýpra í kynningu sem þær voru með á skólaþróunardegi framhaldsskólanna í febrúar s.l. þar sem þær kynntu vinnu um aðlögun íslensku að evrópska tungumálarammanum. Áhersla morgunsins verður á hvernig málfræði og kennslufræði tengjast rammanum og hvernig kennarar geta nýtt rammann í kennslu.

13:00-14:30 - Kynning á uppbyggingu náms í íslensku sem öðru máli í Háskóla Íslands.

Fjallað verður um hvernig framhaldsskólakennarar geta nýtt sér áherslur námsins við kennslu í framhaldsskóla.

Skráningu lýkur 15. júní 2026

Skráningarhlekkur hér: https://forms.office.com/e/7LLXz8Yn7i

Einnig verður hægt að fylgjast með viðburðinum í streymi, en verkefnavinna fer eingöngu fram fyrir þátttakendur á staðnum.

Performers

  • Menntamálastofnun
    Menntamálastofnun
    Miðstöð menntunar og skólaþjónustu stuðlar að framúrskarandi menntun og farsæld allra barna og ungmenna. Þetta gerir hún með öflugum stuðningi og markvissri þjónustu við leik-. grunn- og framhaldsskóla um land allt.
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
    Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

    Miðstöð menntunar og skólaþjónustu stuðlar að framúrskarandi menntun og farsæld allra barna og ungmenna. Þetta gerir hún með öflugum stuðningi og markvissri þjónustu við leik-. grunn- og framhaldsskóla um land allt.