Læsi til náms og yndis | Læsisráðstefna MSHA og MMS

Læsi til náms og yndis | Læsisráðstefna MSHA og MMS

Háskólinn á Akureyri, Norðurslóð 2, 600 Akureyri Directions

Sat 12.09.2026 09:30

📚 Læsi til náms og yndis – læsisráðstefna 2026

Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri (MSHA) og Miðstöð menntunar og skólaþróunar (MMS) bjóða til læsisráðstefnu laugardaginn 12. september 2026 í Háskólanum á Akureyri.

Ráðstefnan er vettvangur fyrir kennara, skólastjórnendur, fræðafólk og aðra sem hafa áhuga á læsi og mikilvægi þess í námi og starfi skóla.

📣 Málstofukall!

Við óskum eftir erindum á málstofur frá kennurum á öllum skólastigum, fræðafólki og öðrum áhugasömum um efni rástefnunnar. Frestur til að skila ágripum er 15. maí.

🎤 Aðalfyrirlesarar:

Dominic Wyse, Pernille Ripp, Yrsa Þöll Gylfadóttir og Gunnar Theodór Eggertsson

🗣️ Fjölbreyttar málstofur og umræður um læsi sem grunn að námi, þátttöku og ánægju í skólastarfi.

👉 Nánari upplýsingar og skráning á vef ráðstefnunnar: https://www.unak.is/is/samfelagid/vidburdir/laesi-til-nams-og-yndis

Við hlökkum til að sjá þig!

Performers