Peyspuprjón / 4 skipti

Peyspuprjón / 4 skipti

Faxatorg - Faxafen (2. hæð), Faxafen 10, 108 Reykjavík Directions

Tue 08.09.2026 18:00

Langar þig að prjóna peysu í flæði, efla hugrekki þitt í handavinnunni og skapa þína eigin flík frá grunni?

Á þessu námskeiði ætlum við að gera allt þetta í notalegu rými á þeim hraða sem þér hentar. Við ætlum að prjóna peysu innan ákveðins ramma og eftir grunnaðferð, stíga inní hugrekkið, kveikja á hugmyndafluginu í litavali, flæði og gleði. Þú velur þína eigin liti og stærð en færð leiðbeiningu og hvatningu með allt annað.

Við prjónum peysuna fram og til baka í 4-5 hlutum (fer eftir því hvort þú vilt hafa hana opna eða lokaða) og lykkjum svo hlutana saman. Það er nóg að kunna slétt prjón, kostur að kunna brugðið líka. Byrjendur & upprifjendur fá kennslu í prjóni.

Í lokin lykkjum við saman annað hvort með nál eða heklunál. Þau sem þurfa fá kennslu í því. Á milli þess sem við hittumst fá þátttakendur send kennslumyndbönd sem styðja við og hjálpa á þeim stað sem þið eruð stödd.

Við hittumst einu sinni í viku í 4 vikur í 2 tíma í senn og náum þannig að mynda gott samfélag og aðhald okkar á milli en engin pressa er þó á að klára ákveðna hluti fyrir ákveðinn tíma. Allir þátttakendur fá tæki og tól til þess að ná að klára sína peysu á sínum hraða.

Hugmyndin byggist á því að vinna með afgangsgarn eða það garn sem þú átt heima en auðvitað er velkomið að kaupa nýtt garn sérstaklega fyrir verkefnið. Það verður auka afgangsgarn á staðnum til að nota með og bæta við en þátttakendur útvega uppistöðu garnið í sínu verki og koma með sína eigin prjóna. Mælt er með 60 eða 80 cm hringprjónum í stærð 6-12. Velkomið að eiga samtal um hentuga prjónastærð miðað við garnóskir áður en námskeiðið hefst.

Allir þátttakendur fá 15% afslátt í verslun Flóðs & fjöru á meðan námskeiðinu stendur. Svo ef þig vantar prjóna eða annað er hægt að bæta úr því í fyrsta tíma.

Námskeiðið hentar vel fyrir bæði byrjendur og lengra komna og er þetta einstakt tækifæri til þess að njóta handavinnunnar í flæði og sköpun.

Við hittumst þriðjudagana: 8., 15., 22. og 29. september.

Klukkan 18:00 - 20:00

Verð: 24.900 kr.

(velkomið að hafa samband til að skipta greiðslum)

Leiðbeinandi er Hera Sigurðardóttir eigandi Flóðs & fjöru.