Prjónanámskeið fyrir byrjendur

Prjónanámskeið fyrir byrjendur

Faxatorg - Faxafen (2. hæð), Faxafen 10, 108 Reykjavík Directions

Tue 25.08.2026 18:00

Langar þig að læra að prjóna eða vantar þig að fá upprifjun til að geta byrjað aftur? Vertu með í litlum hópi þar sem við lærum grunninn í prjóni, slétt & brugðið, svo þú getir hafist handa við að prjóna það sem þú vilt, peysur, húfur, vettlinga, teppi...

Dagsetning: 25. ágúst

Tími: 18 - 20

Verð: 12.900 kr.

Innifalið er kennsla, prjónar, garn

Námskeið hentar vel fyrir byrjendur & upprifendur. Hlýr tebolli og hugguleg stemning. Kennari Hera Sigurðardóttir.

Sköpun og handavinna eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Að leggja af stað með hugmynd og ásetning en leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa verkið og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur innan ramma upphafs og endis og útkoman er þín.

Performers