Goluskáld í Hvalsnesi
Kaffi Gola, Hvalsnes, 245 suðurnesjarbær Directions
Sat 15.08.2026 14:00
Goluskáld í Hvalsnesi.
Ljóðaupplestur í Kaffi Golu laugardaginn 15. ágúst 2026 kl. 14.
Nokkur verðlaunaskáld lesa ný og eldri ljóð á Hvalsnesi þar sem m.a. stórskáldið Hallgrímur Pétursson þjónaði um nokkurra ára bil og skildi eftir stein til minningar um dóttur sína Steinunni. Skáldin fjalla m.a. um fegurð, sorg, áföll, gleði.
Anna Björg Hjartardóttir rekur heildverslunina Celsus ehf. með heilsuvörur. Hún hefur áhuga á ljóðagerð og söng og er í tónlistarnámi en hún hefur komið fram sem einsöngvari víða á viðburðum. Anna Björg vann til verðlauna í ljóðasamkeppni Ljósberans 2023. Hún hefur áhuga á heimspeki og heldur fyrirlestra um friðarmál og búddisma. Hún er virk í alþjóða friðar-, menntunar og menningarsamtökum Soka Gakkai Int.
Eygló Jónsdóttir er fædd og uppalin í Hafnarfirði og starfaði þar sem framhaldsskólakennari. Hún lauk meistaranámi í ritlist frá Háskóla Íslands og hefur sent frá sér tvær ljóðabækur, smásögur og fjórar barnabækur en sú nýjasta, Jólaævintýri Gloríu, kom út í fyrra. Sögur Eyglóar hafa einnig birst í ýmsum safnritum.
Garibaldi (Garðar Baldvinsson) er fæddur í Reykjavík 1954 og hefur ort ljóð í áratugi. Ljóðin í Þagnafári sýna líf föður skáldsins og flótta hans frá áföllum í bernsku sem brjótast fram þegar hann jarðsetur yngsta son sinn. Ljóðin lýsa magnþrungnum harmi og tekur myndmálið mið af hrikalegri náttúru á Hornströndum þar sem faðir hans ólst upp. Í sjötíu bragandi dúfur frá 2024 fjallar Garibaldi um samband sitt við yngsta bróður sinn sem er jarðsettur í Þagnafári.
Gunnhildur Þórðardóttir er myndlistarmaður, skáld og kennari. Hún hefur víðtæka menntun í listum og listasögu frá mörgum háskólum, innlendum og erlendum. Gunnhildur hefur haldið fjölda sýninga á myndverkum sínum og tekið þátt í samsýningum víða um land og erlendis. Hún er stofnand i listahátíðarinnar Skáldasuðs og Myndlistarskóla Reykjaness. Hún fékk ljóðaverðlaunin Ljósberann árið 2019 og hefur gefið út sex ljóðabækur og tekið þátt í fjölda upplestra.
Margrét Lóa Jónsdóttir fæddist í Reykjavík árið 1967. Í hittiðfyrra hlaut hún Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir 12. ljóðabók sína, Pólstjarnan fylgir okkur heim. Fyrsta ljóðabók Margrétar, Glerúlfar, kom út 1985. Margrét Lóa hefur gefið út skáldsögu og þýtt ljóð, einkum úr spænsku. Einnig hefur hún starfrækt listagalleríið Marló og bókaútgáfu með sama nafni. Margrét Lóa hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir ljóðagerð sína.
Ragnheiður Lárusdóttir hefur skrifað ljóð frá því að hún lærði að skrifa. Árið 2020 hlaut hún Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðabókina 1900 og eitthvað en í hittiðfyrra kom út bókin Veður í æðum sem er safnbók og inniheldur allar þær fjórar bækur sem hún hefur skrifað til þessa. Í þeirri bók yrkir Ragnheiður um þá sáru reynslu að horfa á dóttur sína lenda í fjötrum fíknar – en líka um þá töfra tilverunnar sem umlykja okkur og vonina sem glóir víða.
Performers
-
Anna Björg HjartardóttirEinsöngvari og ljóðskáld, hefur unnið til verðlauna í ljóðasamkeppni.
-
Eygló Jónsdóttir
Ljóðaskáld
-
Gunnhildur ÞórðardóttirArtist
-
Margrét Lóa JónsdóttirLjóðaskáld