Fimm skóga gravel

Fimm skóga gravel

Kjarnaskógur, Birkimel, 600 Kjarnaskógur Directions

Sat 08.08.2026 09:00

HFA hefur tekið við malarhjólreiðakeppninni sem áður var undir nafni Súlur Vertical.

Alvöru malarhjólreiða viðburður með því besta sem norðurland hefur uppá að bjóða.

Fimm skóga gravel er viðburður þar sem boðið er upp á bæði keppnisflokka og skemmtiflokka og áherslan er á gleði og gaman. Flestar tegundir hjóla eru leyfð og verður boðið upp á rafmagnshjólaflokk í Mölinni.

Mölin: Mölin er tæplega 40 km leið fyrir fólk sem leitar að áskorun, vill njóta þess besta sem þekkist í hjólreiðum og reyna á sig upp brekkur sem eru samt ekki of langar. Brautin hentar þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í malarhjólreiðum, hvort sem það leitar að keppni eða áskorun eða bara til að taka þátt í skemmtilegum viðburði og gera sér glaðan dag.

Ræst kl 12:00

Leiðarlýsing: https://www.strava.com/routes/3387813945971040632

Klöppin: Klöppin er 82 km leið. Hún er fyrir lengra komna, en á færi flestra sem hafa reynslu af hjólreiðum eða öðrum úthaldsíþróttum. Gott klifur í byrjun og á lokakaflanum sér til þess að öll koma sveitt og sæl í endamark, búin að sigrast á leiðinni og sjálfum sér.

Boðið er upp á skemmtiflokk (fondo) fyrir þá sem er að leita að alvöru áskorun en eru ekki í keppnishug eða ef t.d. vinahópurinn vill fara saman í skemmtilegt ævintýri sem endar í grilli í Kjarnaskóg og Skógarböðunum. Skemmtiflokkur ræsir skömmu eftir keppnisflokknum. Allir fá tímana sína skráða og fá þátttökuverðlaun.

Ræst kl 10:30

Leiðarlýsing: https://www.strava.com/routes/3387813482433481954

Hamarinn: Hamarinn er 130 km leið (ath breyting á leiðinni frá því í fyrra). Leiðin liggur um stóran hluta Fnjóskadals og er krefjandi og tæknileg en ekki of löng. Hamarinn er fyrir þá allra hörðustu sem vilja alvöru áskorun og keppast um hver sé allra mesti hamarinn.

Ræst kl 9:00

Leiðarlýsing:

https://www.strava.com/routes/3506711214412473764

Allar nánari upplýsingar og skráning fer fram á netskraning.is. Þetta er viðburður sem ekki er hægt að missa af og allir ættu að finna sér eitthvað við hæfi.

https://netskraning.is/fimmskoga-gravel/

Performers