Innri velferð - ytri gróska
Sólheimar Í Grímsnesi, Sólheimar, 805 Selfoss Directions
Fri 28.08.2026 14:00
Dagana 28.–29. ágúst bjóðum við upp á nærandi námskeið þar sem náttúra, kyrrð, samtal og innblástur mætast í fallegu umhverfi á Sólheima í Grímsnesi.
Á þessu námskeiði köfum við dýpra í Innri þróunarmarkmiðin (Inner Development Goals) og leyfum þeim að verða að lifandi upplifun í líkama, huga og hjarta. Við skoðum hvernig við getum dýpkað tengst við eigið innsæi og visku á tímum hraða og álags og hvernig við getum skapað meira jafnvægi og tilgang í lífi og starfi.
Á þessum dögum munum við:
🌿 hlusta á erindi og eiga í innihaldsríku samtali
🌿 fara í skógarbað og nærandi göngur í náttúrunni
🌿 stunda núvitund, öndun og hugleiðslu
🌿 njóta yoga nidra, hljóðheilunar og kyrrðar
🌿 skapa rými fyrir eigin innri rödd
🌿 styrkja tengsl, samkennd og samfélag
Við trúum því að þegar manneskja hlustar á sjálfa sig og leggur rækt við eigin gildi verði til dýpri tenging við aðra og við heiminn.
Stundum byrjar stærsta breytingin með því að staldra við og hlusta. 🍂
Dagsetningar: 28.-.29. ágúst 2026 hefst kl. 14:00 föstudaginn 28. ágúst og lýkur 17:30 laugardaginn 29. ágúst.
Hvar: Sesselíuhús- Sólheimar í Grímsnesi.
Gisting: Tveggja manna herbergi í Veghúsum, Sólheimar
Verð: 68.000.- Innifalið í verði er fæði, gisting og öll kennsla. ATH, mörg stéttarfélög bjóða upp á endurgreiðslu námskeiða af þessu tagi.
Skráning: https://forms.gle/oWVK2ExCEAFSvAL16
Um skipuleggjendur: Þuríður Helga Kristjánsdóttir og Kristrún Anna Konráðsdóttir sjá um skipulag helgarinnar í samstarfi við fyrirlesarana, Hafdísi Hönnu Ægisdóttur, Nicole Keller, Sólveigu Hlín Kristjánsdóttur og Þórhildi Fjólu Kristjánsdóttir.
Nánari upplýsingar: Þuríður Helga, thuridur@veglyndi.is, 832 3339
Gott er að taka með minnisbók til að skrifa í. Ef óskað er eftir því að vera ein/einn í herbergi þarf að greiða fyrir það aukalega.
Performers
-
Inner Development Goals - Ísland
Inner Development Goals (IDG) Iceland Hub - er vettvangur fyrir öll sem hafa áhuga á að þróa innri hæfni til að takast á við áskoranir samtímans og vinna að sjálfbærri framtíð í tengslum við alþjóðlegu IDG hreyfinguna og Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
-
Þuríður Helga Kristjánsdóttir
Kennari
-
Kristrún Anna KonráðsdóttirTeymisþjálfi, kynnir hugmyndafræði Innri þróunarmarkmiðanna.
-
Nicole Kellerharmonium og söngur