Fyrirgefningin rauður þráður

Fyrirgefningin rauður þráður

Grensáskirkja church, Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík Directions

Sun 16.08.2026 11:00

Sunnudaginn 16. ágúst kl. 11:00 fer fram messa í Grensáskirkju. Kirkjukór Grensáskirkju syngur undir stjórn Ástu Haraldsdóttur organista. Séra Þorvaldur Víðisson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. 
Textar dagsins hafa allir fyrirgefninguna að leiðarljósi. Fyrirgefningin er sem rauður þráður í textum dagsins eins og í boðskap Biblíunnar. 
Gengið verður til altaris. 
Að messu lokinni og messukaffi, verður haldið af stað í safnaðarferð í Hvalfjörð. Þar munum við taka þátt í helgihaldi í Hallgrímskirkju í Saurbæ ásamt heimilisfólki og söfnuðinum í Hvalfirði. Tilefni ferðarinnar er sú að nýverið gaf Grensássöfnuður gamla orgel safnaðarins í Hvalfjörðinn, en leikið verður á orgelið í helgihaldinu þar, sem hefst kl. 14. 
Verið hjartanlega velkomin til messu í Grensáskirkju og safnaðarferð í Hvalfjörðinn. 

Performers